Miðvikudagur, 11. apríl 2007
Kastljós spurningar/svör ?
Einkennilegt er að heyra fulltrúa Sjálfsæðisflokksins segja í Kastljósi í gær að tölur sína að börn erlends vinnuafls ( nýbúa )séu ekki orðin fleiri í skóla og þar af leiðandi sé erlent vinnuafl hérna bara til skamms tíma, ss að foreldrar séu hér við vinnu en börnin eru hér ekki. Veit þetta fólk ekki að foreldrarnir eru hér við vinnu, börnin eru hjá skyldfólki erlendis og foreldrar eru að berjast við að koma sér upp heimili hér, sem er allt að því vonlaust með þau laun sem þau fá, þannig að sumir foreldrar sjá ekki börn sín í 1-2 ár vegna þessa, það er dýrt að ferðast erlendis fyrir þá sem eru á lágu laununum. Hvað með það húsnæði sem erlenda vinnuaflið sættir sig við, jú það eru kjallara holur, ósamþykktar, jafnvel ekki eldhús bara hitahella, og þarna leigja saman nokkrir, eru 1-2 í herbergi og borga um 20-30 þúsund, þannig að 3 herb í ósamþykktu húsnæði gefur eiganda 90-120 þúsund í óskráðar tekjur, ekki vita þau heldur um húsnæðisbætur sem á að fylgja hverjum þeim sem leigjir með viðmiðun af launum.
Er ekki kominn tími til að þeir stjórnmálaflokkar sem tala fögrum orðum um kjör nýbúa komi ofan af stallinum og sjái hvað er að gerast hér niðri á gólfi hjá þeim hinum.
Húsnæðisbætur hafa reyndar ekki hækkað í samræmi við húsaleigu, sem er skammarlegt athæfi af hálfu þeirra sem því ráða.
Hvað með allt það sem Framsókn vildi gjarnan hafa gert en gerði ekki og er í þeirra stefnuskrá, en viti menn Jón Sigurðsson sagði í Ísland síðdegis að það þyrfti samþykki annarra til að fá hlutunum breytt, annarra?? Sjálfstæðisflokks já, s.s. flokkur atvinnurekanda vildi engu breyta eða hjálpa Framsókn að framfylgja stefnuskrá þeirra og þess vegna var ekkert gert,svona skildi ég hans viðtal og svona skil ég feluleik Framsóknar.
Hvað með félagslega kerfið sem hefur verið svelt í 12 ár ? Eigum við að sætta okkur við það að börn í vanda og foreldrar barna í vanda fái litla sem enga aðstoð eða stuðning vegna þess að ekki er til fjármagn. Það er nokkuð víst að biðlistar á stofnunum sem eiga að aðstoða börn/foreldra eru allt of langir, 12 ára svelt hefur sitt að segja.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.